Reyndi samt að fá að útskrifast í dag en oh well better luck next time.
Búin að fara í fjólublátt bað alla morgnana sem er ágætt, sótthreinsandi bað sko. Á kvöldin er svo hárið tekið í gegn og áburður og drasl borið í það. Þess inná milli lítið að gera.......hálf leiðinlegt eitthvað. Búin að vera dugleg að sauma og er alveg að verða búin með jólateppið!! Loksins.....bara 4 ár sem þetta er búið að taka mig.......
Vá hvað ég varð andlaus eitthvað að setjast hérna. Held ég barasta nenni þessu ekki.
Engin tölva á spítalanum......ofcourse :( og alltaf verið að horfa á aðrar stöðvar en sem mig langar að sjá þannig að ég er ekkert búin að horfa á imbann.....meira að segja fréttirnar á stöð2 hef ég hlustað á á bylgjunni.....þetta gamla fólk vill bara horfa á gufuna :(
Lenti svo með einni 70 kerlu í herb. hún kom í gær og þvílíkt sem hún tuðar og röflar að það nær engri átt. En ég svona fyrirmyndar ung kona og yndisleg.....læt ekki á neinu bera og brosi mínu fallegasta þannig að það fara bara að vaxa vængir fljótlega á mig. Vona að hún verði sem minnst inni á herb. í næstu viku.....nóg að geta ekki sofið fyrir hrotunum sem þessi litla kona gefur frá sér......ótrúlegt alveg.
Held mamma sé pirruð á að ég sitji ekki frammi hjá henni og hlusti á hana kvarta..... held mig langi aftur á spítalann bara :P