Annars hlakkar mig rosalega til þegar sims 2 kemur út!!! Þarf bara að uppfæra tölvuna áður en ég get spilað hann, en það er hvort eð er kominn tími á það fyrir löngu.
Búin að hafa það fínt yfir jólin og búin að éta eins og svín *oink* Þvílíkt góður matur hjá okkur og hamborgarahryggurinn er sko alltaf uppáhaldsmaturinn minn *smjatt*
Fékk fínar gjafir líka, næstum allt sem mig langaði í. Fékk Harry Potter og fönixreglan á íslensku (já já mér sama hvað öðrum finnst, mér finnst þetta skemmtilegar bækur), fékk 2000 stk pússl sem kemur sér vel á leiðinlegum kvöldum, fékk alveg geggjað súkkulaði sem er búið móta í mynd af sofandi kisu og 3 músum og stendur á þýsku þegar kötturinn sefur leika mýsnar sér (tími sko ekki einu sinni að éta þetta!!!), fékk líka styttu, einskonar disk (voða sætt) sem ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við, jólasveinahjónin (styttur sem dúa ef komið er við þær), hundabangsa (nr.54 í safnið...eða 62 er ekki alveg viss þarf að telja aftur) og síðast en ekki síst fékk ég saumaskrín sem amma mín heitin átti og eru ýmsir hlutir í því. Mig hefur alltaf langað í eitthvað sem hún átti en hún dó þegar ég var 2 ára og er ég alnafna hennar.
Ég er alltaf að pæla svo mikið í framtíðinni og finnst mér ótrúlegt að það séu bara 3 dagar eftir af þessu ári!! 2004 að ganga í garð. Ekkert smá sem tíminn líður hratt!!! Ég er að eldast ótrúlega mikið og á afmæli einu sinni enn eftir aðeins meira en mánuð!!! Finnst ég ekki beint hafa áorkað miklu í lífinu...nema að lifa af....það svo sem kraftaverk útaf fyrir sig.
Mig langar rosalega í skóla og ná mér í einhverja menntun. Ætla að sjá til með nokkra áfanga í fjarnámi eftir áramót. Mig langar nefnilega að klára stúdentinn áður en ég fer í háskólann. Held ég geti samt farið beint í háskólann ef ég vil? Orðin það gömul sko.
Jæja ætla að uppfæra þessa blessuðu kosningu mína og vonandi fæ ég fleiri til að kjósa núna!
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home