Ég er ennþá með heiftarlega verki í kjaftinum :( og komin með bólgur í efri góminn í þokkabót! Vonandi fer þetta að lagast þar sem ég verð ekkert smá geðvond þegar ég er með verki sona lengi, fékk mígrenikast á þriðjudagsmorgun og það ofan í tannverk er nóg til að fá mann til að drepa mann og annan!
En á gleðilegri nótunum þá kláraði ég Harry Potter order of the Phoenix og var hún ágæt alveg, ekki eins mikið að gerast eða eins hröð atburðarrás og áður en þetta var samt mjög fín bók sem ég á eftir að kaupa mér einn daginn.
Ég get ekki beðið eftir myndinni um order of the phoenix þar sem uppáhaldið mitt og eiginmaður Alan Rickman fer með stærra hlutverk en vanalega!!! Hann leikur prófessor Snape fyrir þá sem ekki vita :P
Ég er að lesa Dead Zone eftir Stephan King núna og síðan fer ég á fullt í Anne McCaffrey aftur, þannig að Gerður fær bækurnar sínar áður en langt um líður vonandi!!!! Ég er 15 bækur við rúmmið sem bíða lesningar og það er fyrir utan nokkur stykki sem bíða í bókahillunni eftir mér. Ég fékk Anne Rice Vampire chronicle í afmælisgjöf og hef ekki getað lesið nema fyrstu bókina ennþá!
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home